Markmiðið er, sbr. Fjarskiptaáætlun 2005-2010, að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðanettengingum.
Verkefnið er því uppbygging á háhraðanettengingum á þeim stöðum þar sem markaðsaðilar eru ekki eða ætla ekki að bjóða upp á háhraðanettengingar á markaðslegum forsendum.