Sjálfgefið leturStórt leturSjóndaprir
Staðir í verkefninu

Samningur fjarskiptasjóðs og Símans hf. um háhraðanettengingar var undirritaður 25. febrúar 2009. Samningurinn byggir á staðalista, þ.e. lögheimilum með heilsársbúsetu og fasteignum með atvinnustarfsemi lögaðila allt árið, sem voru ekki hluti af tilkynntum markaðssvæðum fjarskiptafyrirtækja við undirskrift samningsins.

Breytingar á staðalista
Staðir geta fallið út eða komið inn í verkefnið á samningstímanum.
Leiðréttingar hafa verið gerðar þar sem að mistök við afmörkun markaðssvæða fyrir undirritun samnings voru leiðrétt.

Staðir sem bættust við verkefnið stuttu fyrir undirritun samnings voru sumir óyfirfarnir og þá hefur þurft að yfirfara og í sumum tilfellum að leiðrétta skráningu.

Staðir hafa hreinlega gleymst og þ.a.l. verið bætt á listann eða þeir ekki uppfyllt skilyrði um búsetu og því verið teknir af listanum.

Breyting á búsetu á samningstímanum kallar á stöðuga endurskoðun listans.
Farið verður sérstaklega yfir staðalista hvers verkáfanga áður en uppbygging hans hefst.
Fjarskiptasjóður áskilur sér rétt til breytinga á staðalista eftir þörfum.
Staðarlisti ásamt breytingum verður uppfærður reglulega á vef fjarskiptasjóðs.

  • Staðalisti
    (uppfærður 26. ágúst 2010) (XLS) 
    - Flipar: Heildarlisti, Stöðum bætt við og Staðir teknir út
  • Upphaf sölu
    (uppfærð 30. ágúst 2010) (XLS)



Fjarskiptasjóður | Hafnarhúsinu við Tryggvagötu | 105 Reykjavík | Netfang:fjarskiptasjodur@fjarskiptasjodur.is | Kt.530306 - 0110 | Sími:545 - 8200