Fjarskiptaáætlun

Tólf ára og fjögurra ára fjarskiptaáætlanir lagðar fram

Innanríkisráðherra hefur lagt fram nýjar fjarskiptaáætlanir á Alþingi, þingsályktanir um tólf ára fjarskiptaáætlun fyrir árin 2011-2022 og fjögurra ára framkvæmdaáætlun áranna 2011-2014. Áætlanirnar voru unnar í innanríkisráðuneytinu með aðkomu Póst- og fjarskiptastofnunar auk vinnuhópa úr stjórnkerfinu í umsjón verkefnisstjórnar um endurskoðun fjarskiptaáætlunar.

Fjarskiptaáætlun mun ná til sama tímabils og samgönguáætlun, þ.e. tólf ára stefnumótunar auk fjögurra ára framkvæmdaáætlunar. Efnistökum áætlunarinnar er ætlað að vera víðtækari en í fyrri fjarskiptaáætlun sem gilti fyrir árin 2005-2010 og er meðal annars fjallað um póstmál, rafræn samskipti, stafræna miðlun og samspil allra þessara málaflokka.



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica