Fjarskiptaáætlun 2005-2010
Fjarskiptaáætlun 2005-2010
Alþingi samþykkti vorið 2005 þingsályktun um stefnu í fjarskiptamálum fyrir árin 2005-2010. Sú ályktun var samin af stýrihópi sem samgönguráðherra skipaði í ársbyrjun 2004. Áætlunin var sú fyrsta sem samþykkt var en samkvæmt lögum um fjarskipti, nr. 81/2003, sbr. lög nr. 78/2005, skyldi samgönguráðherra leggja fram á Alþingi á þriggja ára fresti tillögu til þingsályktunar um fjarskiptaáætlun.
