Fjarskiptasjóður

Hlutverk fjarskiptasjóðs



Fjarskiptasjóður var stofnaður með lögum fjarskiptasjóð, nr. 132/2005. Hlutverk hans er að úthluta fjármagni til verkefna sem miða að uppbyggingu stofnkerfa fjarskipta, verkefna sem stuðla að öryggi og samkeppnishæfni þjóðfélagsins á sviði fjarskipta og annarra verkefna, enda sé kveðið á um þau í fjarskiptaáætlun og ætla má að ekki verði í þau ráðist á markaðsforsendum. Framkvæmdir vegna verkefna fjarskiptasjóðs eru boðnar út og er það hlutverk stjórnar að ákveða tilhögun og stærð útboða.

Með lögum um ráðstöfun á söluandvirði Landssíma Íslands hf., nr. 133/2005, var samþykkt að leggja sjóðnum til fjármagn að fjárhæð 2.500 millj. kr. Þeir fjármunir, sem samþykkt hefur verið að leggja í fjarskiptasjóð, eiga fyrst og fremst að standa straum að þremur markmiðum fjarskiptaáætlunar:

  1. Að allir landsmenn, sem þess óska, hafi aðgang að háhraðanettengingum árið 2007.
  2. GSM-farsímaþjónusta verði aðgengileg á þjóðvegi 1, öðrum helstu stofnvegum og á helstu ferðamannastöðum.
  3. Dreifing sjónvarpsdagskrár Ríkisútvarpsins, auk hljóðvarps Rásar 1 og Rásar 2, til sjómanna á miðum við landið og til strjálbýlli svæða verði stafræn um gervihnött.



Flýtival




Þetta vefsvæði byggir á Eplica