Tillögur til þingsályktunar um fjögurra og tólf ára fjarskiptaáætlanir voru til umræðu á Alþingi í gær þegar innanríkisráðherra mælti fyrir þeim en umræðum var frestað og síðari mál tekin af dagskrá.
Um áramótin tóku gildi ný lög nr. 179/2011 um breytingu á lögum um fjarskiptasjóð. Þar er gildistími sjóðsins framlengdur um fimm ár, til ársloka árið 2016. Markmið breytingarinnar er fyrst og fremst að tryggja að fjarskiptasjóður nái að fylgja eftir þeim verkefnum sem eru á lokastigum vegna fyrri fjarskiptaáætlunar, þ.e. háhraðanetsverkefni fjarskiptasjóðs.
Innanríkisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um fjarskiptasjóð nr. 132/2005, sem er ætlað að framlengja gildistíma fjarskiptasjóðs um fimm ár, en samkvæmt núgildandi lögum munu lögin renna úr gildi um áramót.
Lesa meira