Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina 2023-2027
Starfsgreinaráð samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina er skipað samkvæmt ákvæði 24. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla. Starfsgreinaráð eru, hvert á sínu sviði ráðherra til ráðgjafar um starfsnám á framhaldsskólastigi. Hlutverk þeirra er m.a. að gera tillögur um almenn markmið náms, skilgreina þarfir fyrir kunnáttu og hæfni og gera tillögur um lokamarkmið náms.
Ráðið er svo skipað:
Aðalmenn:
- Hilmar Harðarson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Helgi Ólafsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Þórarinn Sverrisson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Þuríður Tryggvadóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Gunnar Valur Sveinsson, tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- María Jóna Magnúsdóttir, tilnefnd af Bílgreinasambandinu
- Hreinn Ágúst Óskarsson, tilnefndur af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands
Varamenn:
- Jóhann R. Sigurðsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Birgir Örn Guðmundsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Árni Steinar Stefánsson, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Júlíana Einarsdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Ágústa J. Jóhannesdóttir, tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Sverrir Gunnarsson, tilnefndur af Bílgreinasambandinu
- Hildur Ingvarsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands og Kennarasambandi Íslands
Skipunartími er frá 9. maí 2023 til 8. maí 2027.